Skip to main content

Aðalfundur LFÍ 2021

By May 31, 2021Fréttir

Ljóstæknifélag Íslands boðar til aðalfundar félagsins þriðjudaginn 15. júní nk.

Fundurinn hefst kl 17:00 og er haldinn í Rafmennt að Stórhöfða 27 (gengið inn að neðan).

 

Kjörnefnd óskar eftir tilnefningum í stjórn félagsins og einnig tökum við á móti tilnefningum um heiðursfélaga Ljóstæknifélagsins. Tilnefningar má senda á lfi@ljosfelag.is

Mikilvægt er að skrá sig á fundinn. Skráning

Dagskrá samkvæmt samþykktum félagsins:

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
  2. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu starfsári
  3. Reikningar lagðir fram til samþykktar
  4. Lagabreytingar
  5. Ákvörðun félagsgjalds
  6. Kosning stjórnar
  7. Kosning kjörnefndarmanna og skoðunarmanna reikninga
  8. Önnur mál

Hver fullgildur félagi sbr. 3.gr. félagslaganna hefur eitt atkvæði við atkvæðagreiðslu í félaginu.

Í ár verður kosið til formanns í hálft kjörtímabil og 2 stjórnarmanna í heilt kjörtímabil.

Formaður er kjörinn sérstaklega en stjórnarmenn án tilnefningar í tiltekin stjórnarsæti. Kjörtímabil formanns og stjórnarmanna er 2 ár.

Hafi félagsmaður tillögur til að bera undir fundinn má senda þær á lfi@ljosfelag.is eigi síðar en viku fyrir fund.

Stjórn Ljóstæknifélags Íslands

Upplýsingar

Dagsetning
15.júní 2021

Tímasetning
17:00

Staðsetning
Rafmennt, Stórhöfða 27